Pigeklub Bloggar.is
Já við erum komnar með kjaftnóg af þessu helvítis blog.central staðfestingarkóðum og mótmælum með nýju, fersku og flottur bloggar.is bloggi!
Reyndar er ekki komið hópblogg hjá þeim þannig við verðum bara að skrifa nafnið okkar undir til að sýna hver er að skrifa og síðan breytum við þessu bara í hópblogg þegar þar að kemur. Ég segi ykkur aðgangsorðið á morgun
Tékk it.. upplýsingar um bústaðaferð eru að finna þar!
-Jóa - Sú sem kann ekki að gera ekki neitt!
» 0 hafa sagt sína skoðun
Hæj litlu krúttin mín....
Við erum búnar í prófunum!!!!!!!
Til lukku með próflok elskurnar mínar :*
kv, Eva Jóa
» 4 hafa sagt sína skoðun
Sælt veri fólkið
Afhverju er ég að blogga á laugardagskveldi klukkan 00,15?? Á meðan marr ætti að vera að gera ekkað uppbyggilegt. Jú af því að ég er í prófum! Hvern erum við að plata með því að vera voða róleg heima á laugardagskveldi???? Jú bara sjálf okkur!! Hef ég e-n tíman lært á lau.kveldi? uuu... ekki svo ég muni allavega. Díses. Og vá hvað ég er búin að vera að lifa í mikilli sjálfsblekkingu undanfarna daga!!! Hver kannast ekki við það að setjast niður með lærdómsbók í hönd og byrja að læra... lesa og lesa en vera að hugsa um allt annað á meðan..... gefast svo upp og fara að gera annað??? Í dag er ég til dæmis búin að taka til og ryksuga. Myndi ég e-n tíman gera þetta undir eðlilegum kringumstæðum?? Klárlega ekki, því til hvers væri mamma annars....?
SJIII stelpur þið sem ég fór á rúntinn með í gær vitið hvad ég er að tala um!! OMG ég er sárþjáð! Þetta er ekki eðlilegt.. ég næ bara ekki að einbeyta mér!!! það er bara ekki sjéns lengur! Úffff
Write me if you feel my pain!!
Kv. Sófí xxxxx
» 3 hafa sagt sína skoðun
Var í bíói áðan með nokkrum vel völdum aðilum úr pigeklub ásamt staðgengli fyrir hinar stuðstelpurnar... Mér fannst myndin ágætisafþreying... sem sagt hvorki góð né léleg
Veit ekki af hverju ég er að blogga hérna..... hef nákvæmnlega ekkert að segja Veit bara að ég beilaði á ísbíltúr til að fara heim að læra og er ég að læra...? Nei, ég sest niður og fer að blogga um ekkert...
Hey... var að taka eftir því að myndina af Absolute Hunk er farin.... why Mér fannst þetta svo sniðugt þegar ég fattaði að þetta var gaurinn úr Sex and the City (sá þáttinn)... kannski of gróft fyrir viðkvæmar sálir... ég veit ekki
Soffía er eini msn vinur minn núna, hún biður örugglega að heilsa
vá hvað mig langar til að fara sofa og vakna á miðvikudaginn um hádegið
djöfull er þetta lélegt blogg... sorry men
jæja... farin... að læra? varla...
Kv. Marta
P.s. Should we play the game.............
Sæl
Þar sem einhver er búinn að setja inn nýja könnun þá eru hér úrslit síðustu skoðanakönnurnar
greinilegt að sumarbústaðurinn er vinsæll er samt ekki að fíla kosningu á lokaballinu þar sem þið ætlið auðvitað að fjölmenna !
Gangi ykkur vel að læra.. hlakka til þegar þetta helvíti verður búið!
-Jóa
» 2 hafa sagt sína skoðun
» 39 hafa sagt sína skoðun
STELPUR STELPUR......
ÞÓ AÐ ÞAÐ SÉU PRÓF ÞÁ ÞÝÐIR EKKERT AÐ LEGGJAST Í DVALA!!!!!
KVEÐJA
SOFFÍA
» 1 hafa sagt sína skoðun
Jæja það er nú bara nokkuð langt síðan ég bloggaði síðast og búin að fá hótanir á öðrum síðum díses sko.. OMG ég veit ég er poppjúlar girls hehe
En þetta verður nú bara eikkað stutt er nebbla að fara í stæ tíma og síðan er skólaganga mín í 4. bekk búin... Þið kannist við þetta stelpur!!
Ég og Eva gjörsamlega rústuðum Auði og Tinnu Laxdal í pakk 52-9 eruði að grínast með hvað þær eru lélegar eða við kannski bara svona sjúklega góðar hehe!
Fórum á Pizza King í hádeginu og ég fékk stöðumælasekt! Ég hata stöðumælaverði... En ég sá hann einmitt labba fram hjá glugganum á Pizza King er ég misheppnuð eða hvað?!?! Glatað mar :'(
Kennarinn er að bíða eftir tölvunni þannig ég segi bara:
PÍS ÁT
p.s. Tinna og Auður biðja að heilsa ykkur girls
» 12 hafa sagt sína skoðun
» 8 hafa sagt sína skoðun
Ok, áðan sat ég við tölvuna (hennar jóhönnu) í mesta sakleysi mínu og ætlaði að fara stofna minn sirkus prófíl.
Þessi prófíll þróaðist út í e-ð algjört grín (Soffía og Jóhanna hafa þessi áhrif á mig) en gekk aðeins of langt þegar Jóhanna setti inn einhverja ógeðslega mynd af mér og byrjaði að adda Arnari Grant, Ásgeir Kolbeins og ÓlaGreir í "vini" en það má taka það fram að Óli Geir hefur samþykkt mig sem vin og ætlum við í sund á eftir.
En þar sem þetta grín er gert á minn kostnað.. það er mynd, ef ekki myndIR af mér þarna, þá verður þetta ekki mikið lengur inni, ég fæ kjánahroll í hvert skipti sem ég les þetta....
úúú og hver var að blogga í fyrsta skipti síðan í janúar eða e-ð.....?
Kv. Marta atvinnugella
» 10 hafa sagt sína skoðun
Stelpur.... Eigum við að fara í þetta?? Og getur e-r sagt mér hvað þetta er!!
KV. Soffía
Já það gerðist loksins... við Signý fórum í hið langþráða Road-Trip okkar og skelltum okkur upp á Akranes Við vorum búnar að vera að læra uppi í skóla þegar ég ákvað að ég ætlaði að kíkja á hana Röggu mína og Líney krúttu. Signý var ekki lengi að segja já... en mamma hennar Signýar ætlaði að elda eitthvað gómsætt um kveldið þannig að við ákváðum bara að fara eftir matinn Auðvitað var mér boðið í mat og mmmm hvað það var góður matur Takk fyrir mig!!
Eftir matinn fórum við upp í stóra jeppann sem að ég var á og brunuðum af stað... jahú! Við létum ipodinn í samband og hlustuðum á tónlist og töluðum saman á leiðinni..!
Hvernig við komumst í gegnum göngin verður ekki rætt hér
Við fórum beint heim til Röggu og komum henni á óvart með Signýju þar sem að við létum hana ekki vita að hún kæmi með Þetta voru sko fagnaðarfundir Eftir það fórum við og náðum í hina velófrísku Líney og svo á rúntinn Signý missti sig gjörsamlega yfir Hinna Rakara... en það er lítill skúr við endann á rúntinum og þar fara flestir karlmenn á Akranesi í klippingu Við þurftum að stoppa í rúntbeygjunni því að hún Signý þurfti sko að eiga mynd af þessum merkilega stað
Eftir nokkra rúnta og mikið spjall byrjar Líney allt í einu að hlægja og segir okkur að það hefðu verið skór "þarna" við lítum allar við vinstri inní búðargluggann og sjáum enga merkilega skó... Svo eftir nokkra rúnta í viðbót sér Ragga skóna og byrjar að hlægja líka.. Þá voru skórnir hægra megin við okkur og voru bara á gangstéttinni... yfirgefnir!!! Þá hlægjum við allar og Líney verður "fúl" yfir að Ragga hafi stolið brandaranum sínum hehehehe En þetta var allt í gríni Signý hló samt manna mest og Ragga og Líney gátu ekki hætt að hlægja að henni hehe Signý hljóp svo út úr bílnum þegar ég stoppaði hann og tók mynd af skónum... svo hljóp ég út á eftir henni og tók mynd af Signýju með skónum
Eftir þetta lá leið okkar upp í Jörundarholtið á vegasaltið þar Jii hvað það var gaman Ég kenndi stelpunum flöskuleik og þær voru ansi lélegar Eftir nokkra hringi á því fórum við fleiri rúnta og ákváðum að það væri ógeðslega fyndið að stela einum skónum... Signý fórnaði sér fyrir hópinn og það gekk ekki betur en það að hún datt næstum því út úr bílnum.. en Líney bjargaði henni mjög fimlega Þegar skórinn var kominn inn í bílinn föttuðum við að hann gæti verið út ataður í fótasveppum og ákváðum því að skila honum á sinn stað hehe
Eftir nokkra rúnta í viðbót hittum við Nönnu og Elínu og þær fóru með okkur á vegasaltið í Jörundarholtinu og af því að við vorum svo margar ákváðum við að vera tvær og tvær... það gekk ansi brösulega fyrir sig Eftir nokkra hringi á því ákváðum við að fara á vegasaltið nálægt Mörkinni og þar eru fjögur sæti... EF það má kalla þetta sæti.. það var bókstaflega verið að gelda mann þarna!! Elín kom sér samt svo vel fyrir að hún hefði getað sofnað...
Jæja er þetta orðið solldið lagt hehehe En eftir vegasaltaferðirnar fórum við smá á rúntinn, sóttum Lilju sem var með okkur í smá stund... en þar sem að við vorum allar að deyja eftir þessar ferðir -og þá sérstaklega Ragga- ákváðum við að segja þetta gott
Var þetta ekki skemmtileg frásögn
Verðum að gera þetta aftur sæta mín ;*
kv, Eva Skagamær
» 25 hafa sagt sína skoðun
Fyrst að páskafríið er svona eiginlega búið ákvað ég að breyta skoðanakönnuninni (hef heldur fátt annað að gera en að vesenast í einhverju svona)
Ég var að pæla í að hafa einhverja prófaskoðanakönnun, en þar sem það er bara súrt og boring ákvað ég að pæla í hvað við munum gera eftir prófin...
njótið síðustu daga frísins bollurnar mínar
Cut the crap people....Þetta er hætt að vera fyndið... og það fyrir löngu! Kannski hætti það að vera það þegar símanum mínum var stolið í Ármanni og ég fann þjófinn 6 mán seinna með símann... neiii, ekki það..... eða kannski þegar ég missti símann oní kókópöffsið... nei.... eða þegar það var keyrt yfir einn símann og hann splundraðist? kannski... eða þegar sá nýjasti kramdist í stólnum hjá tannlækninum...? Eða bara núna það nýjasta, þegar síminn minn hvarf allt í einu á Oliver.... sjiiit marr... Það er alllavega e-ð sem segir mér að ég eigi ekki að eiga síma!!! En ef svo heppilega vill til og þið sjáð hann þá er hann svona svartur, ógó kúl, samlokusími. Eila alveg nýr, búin að eiga hann í svona max 2 mán... nenni ekki að kaupa nýjan marr... og á heldur ekki pening...!! Vá hvað ég er ógó svekkt!!!!
Kveðja Soffía seinheppna
» 7 hafa sagt sína skoðun
Jæja gellurnar mínar, nú er langþráð páskafrí komið ef frí má kalla því að nú styttist í prófin og held ég að fólk slappi ekkert rosalega af þessa dagana heldur sé prófstressið svona byrjað að læðast inn bakdyramegin. Ég fæ allavega smá frí fyrir austan en held að það verði stutt í nokkrar skólabækur...
Annars eru foreldrarnir flognir til Florida og munum við Einar vera eins og versta sambýlispar á meðan. Elda saman, taka til, rífast um óhreina sokka, æfa saman og vera voða mikið gubbupar eins og ég vil kalla það, en það er bara gaman
Við í pigeklubben þyrftum nú að hittast aðeins áður en prófin skella á en það verður bara að koma í ljós, síðan er það bara sveitt djamm eftir prófin
Jæja ætla að fara að drulla mér í að kíkja á einhverjar glósur og undirbúa lestur. Hafið það sem allra best um páskana
» 5 hafa sagt sína skoðun